Reykjavíkurliðin KR og Fram skildu jöfn, 1:1, í Bestu deild karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í gærkvöldi. Magnús Þórðarson kom Fram yfir undir lok fyrri hálfleiks, þegar hann fylgdi eftir skoti frá Guðmundi Magnússyni.
Reykjavíkurliðin KR og Fram skildu jöfn, 1:1, í Bestu deild karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í gærkvöldi. Magnús Þórðarson kom Fram yfir undir lok fyrri hálfleiks, þegar hann fylgdi eftir skoti frá Guðmundi Magnússyni. Ægir Jarl Jónasson jafnaði með marki af stuttu færi eftir horn á 47. mínútu og þar við sat. KR-ingar hafa því enn aðeins unnið einn heimaleik á leiktíðinni. Eftir leikinn eru liðin áfram í sjöunda og áttunda sæti. KR með 17 stig og Fram með 14 í sætinu fyrir neðan. 22