Vestri, sem féll úr efstu deild karla í körfubolta á síðustu leiktíð, leikur í 2. deild á næstu leiktíð í stað þeirrar fyrstu, að ósk félagsins. ÍA, sem átti að falla úr 1. deildinni, heldur sínu sæti í næstefstu deild í staðinn.

Vestri hefur verið að draga inn seglin í körfuboltanum en félagið dró lið sitt úr keppni í 1. deild kvenna á dögunum.
Karlalið Vestra hafnaði í ellefta sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og kvennaliðið í neðsta sæti 1. deildarinnar.