Reykjanesbraut Sprengingin í gær var um 30 metra frá veginum.
Reykjanesbraut Sprengingin í gær var um 30 metra frá veginum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Til skoðunar er hvort stöðva þurfi umferð á Reykjanesbrautinni, rétt á meðan sprengja þarf vegna framkvæmda við veginn í grennd við álverið í Straumsvík. Þetta segir Guðmundur Mar Magnússon, sérfræðingur á sviði vinnuverndar hjá Vinnueftirlitinu.

Grjót og hnullungar þeyttust út á Reykjanesbrautina í gær og yfir bíla á akbrautinni, þegar sprenging varð vegna framkvæmda á vegum undirverktaka Vegagerðarinnar. Ekki varð mikið tjón á bílum en atvikið er nú til skoðunar hjá Vinnueftirlitinu og er gagnaöflun í gangi.

Að sögn sjónarvotts sem rætt var við í gær varð sprengingin örfáum metrum frá veginum. Guðmundur Mar segir það hins vegar ekki rétt, heldur hafi verið sprengt um 30 metrum frá veginum.

Að sögn Guðmundar eiga gúmmímottur að vera yfir holunni sem sprengja er staðsett í, til að koma í veg fyrir grjótkast. Telur hann líklegt að ekki hafi verið notaðar nógu margar mottur í gær og því hafi grjót náð að finna sér leið í gegn og út á veginn. Allt bendir til þess að verktakinn hafi fylgt reglugerðum í gær en svona tilfelli geti ávallt komið upp. Þess vegna sé til skoðunar hvort að stöðva þurfi umferð á veginum rétt á meðan sprengja þarf. hmr@mbl.is