Flestum rannsóknaraðgerðum er lokið er snúa að meintu manndrápi í Barðavogi. Fyrst og fremst er beðið eftir gögnum, meðal annars er snúa að sakhæfi hins grunaða.

Flestum rannsóknaraðgerðum er lokið er snúa að meintu manndrápi í Barðavogi. Fyrst og fremst er beðið eftir gögnum, meðal annars er snúa að sakhæfi hins grunaða.

Þetta staðfestir Eiríkur Valberg hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út eftir tíu daga, hinn 29. júlí, en líklegt er að óskað verði eftir framlengingu á því. Miðað er við að rannsóknir af þessu tagi taki allt að tólf vikur en rúmar sex vikur eru frá atburðinum.

„Það er svolítið eftir, en flestum rannsóknaraðgerðum er lokið. Við erum fyrst og fremst að bíða eftir gögnum,“ segir Eiríkur.