Gautaborg Sænska lögreglan ætlar að beita íslenskri nálgun.
Gautaborg Sænska lögreglan ætlar að beita íslenskri nálgun. — Morgunblaðið/Ómar
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Lögreglan í Gautaborg hefur ákveðið að breyta um aðferðafræði þegar kemur að rannsóknum á ofbeldi í nánum samböndum og verður nýja leiðin byggð á íslensku módeli.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir

hmr@mbl.is

Lögreglan í Gautaborg hefur ákveðið að breyta um aðferðafræði þegar kemur að rannsóknum á ofbeldi í nánum samböndum og verður nýja leiðin byggð á íslensku módeli.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að íslenska aðferðafræðin hafi verið kynnt víða og að ánægjulegt sé að Svíarnir séu að taka hana upp. Þá segir hún fleiri þjóðir hafa sýnt aðferðafræðinni áhuga, þar á meðal Grikkir, sem eru væntanlegir í heimsókn í ágúst til að kynna sér íslenska módelið enn frekar.

Fleiri tilkynningar borist

Að sögn Sigríðar Bjarkar telja lögregluyfirvöld að aðferðafræðin hafi reynst vel en hún var innleidd á öllu landinu árið 2015. Síðan þá hafa hlutfallslega fleiri tilkynningar borist um heimilisofbeldi og fleiri dómar fallið brotaþolum í vil.

„Við höfum fundið fleiri börn sem sæta heimilisofbeldi, sem við hefðum kannski ekki fundið með þeim aðferðum sem við beittum áður,“ bætir hún við.

Aðferðafræðin sem um ræðir felst í auknu samstarfi með sveitarfélögum og félagsmálayfirvöldum. Áhersla er lögð á að veita fjölskyldum stuðning á meðan rannsókn á málinu stendur yfir.

Stærsta breytingin er varðar störf lögreglunnar, að sögn Sigríðar Bjarkar, felst þó fyrst og fremst í því að fresta ekki rannsókn málsins.

„Áður fórum við bara í útkallið þegar það kom. Fórum á staðinn og stilltum til friðar. Núna rannsökum við málið eins ítarlega og við getum, strax á vettvangi.“

Að sögn Sigríðar auðveldar þetta sönnun málsins og lögregla verður ekki jafn háð framburði brotaþola.

Carina Eliasson, yfirmaður heimilisofbeldisdeildar lögreglunnar í Vestur-Gautlandi í Svíþjóð, segir í samtali við Göteborgs-Posten, að aukin samvinna með félagsmálayfirvöldum og stuðningur við fjölskyldur hafi vakið athygli hennar á íslensku aðferðafræðinni.

Carina talaði fyrir því að lögreglan í Gautaborg tæki upp þessa nýju nálgun en hún hefur unnið náið með brotaþolum og upplifað oft og tíðum að börnin gleymdust, þegar ofbeldi í nánum samböndum hefur verið til rannsóknar.