Söngvari Steingrímur Karl Teague hljómborðsleikari og söngvari.
Söngvari Steingrímur Karl Teague hljómborðsleikari og söngvari. — Morgunblaðið/Ágúst
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitin Moses Hightower kom með nýjan hljóm í íslenskan tónlistarheim undir lok tíunda áratugarins með smáskífum og sinni fyrstu plötu, Búum til börn , sem kom út 2010.

Árni Matthíasson

arnim@mbl.is

Hljómsveitin Moses Hightower kom með nýjan hljóm í íslenskan tónlistarheim undir lok tíunda áratugarins með smáskífum og sinni fyrstu plötu, Búum til börn , sem kom út 2010.

Í upphafi var sveitin skipuð þeim Andra Ólafssyni, bassaleikara og söngvara, Daníel Friðriki Böðvarssyni gítarleikara, Magnúsi Trygvasyni Eliassen trommuleikara og Steingrími Karli Teague, hljómborðsleikara og söngvara.

Enn eru þeir að vinna saman sem Moses Hightower, Andri, Magnús og Steingrímur, sendu frá sér plötu á þarsíðasta ári og halda tónleika í Gamla bíói með Svavari Pétri Eysteinssyni, Prins Póló, næstkomandi föstudag. Þeir eru líka að iðja hver í sínu lagi, eins og til að mynda Steingrímur sem gaf út plötuna More Than You Know með söngkonunni Silvu Þórðardóttur fyrir stuttu.

Úr nýbylgjurokki í djass

Áður en Moses Hightower-ævintýrið hófst hafði Steingrímur komið víða við í íslenskum tónlistarheimi, til að mynda spilað nýbylgjurokk með hljómsveitinni Ókind sem náði öðru sæti í Músíktilraunum 2002 og gaf út plöturnar Heimsenda 18 og Hvar í hvergilandi , en einnig hafði hann leikið jazz með ýmsum tónlistarmönnum og söngkonum, stundum sem íhlaupamaður, og ferðast um heiminn með Of Monsters and Men eins og hann rekur í Dagmálum.

Steingrímur segir að Andra Ólafsson, bassaleikara og söngvara, kórfélaga hans úr MH, sem var mjög áhugasamur um djass hafi langað að setja saman hljómsveit til að spila þannig músík. Þeir voru þó ekki að stofna djasshljómsveit, heldur frekar sveit sem myndi spila djassskotna tónlist áþekka því sem vinsælt var vestan hafs á sjöunda og áttunda áratugnum, rytmablús Bill Withers, Sly and the Family Stone, Stevie Wonder. „Í dag eru margir að spila þannig tónlist en okkur leið þá eins og það væru ekki það margir að spila þannig dót, eins og okkur fannst almennilegt. Svo gátum við það eiginlega ekki heldur en það kom eitthvað annað í staðinn.“

Segja má að hljómurinn sem einkennir sveitina hafi orðið til á fyrstu æfingunni, eins og Steingrímur rekur söguna: „Fyrsti hittingurinn var í kjallara foreldra minna, eftir eitthvert FÍH-sprell, djammsession eða eitthvað, fórum við heim til mín og þurftum að hafa svakalega lágt, því það voru allir sofandi heima, höfðum kertaljós og Zoom-upptökuæki í gangi og þar kom hljómagangurinn að titillagi fyrstu plötunnar, Búum til börn . Það var bókstaflega í fyrsta sinn sem við byrjuðum að spila saman.“