Sýni tekið vegna kórónuveiru.
Sýni tekið vegna kórónuveiru.
Staðfest kórónuveirusmit frá því kórónuveirufaraldurinn hófst fóru um um síðustu helgi yfir 200 þúsund. Þetta kemur fram á vefnum covid.is þar sem birtar eru upplýsingar um fjölda smita og fleira tengt faraldrinum. Þar kemur einnig fram að 5.

Staðfest kórónuveirusmit frá því kórónuveirufaraldurinn hófst fóru um um síðustu helgi yfir 200 þúsund.

Þetta kemur fram á vefnum covid.is þar sem birtar eru upplýsingar um fjölda smita og fleira tengt faraldrinum. Þar kemur einnig fram að 5.116 hafa veikst oftar en einu sinni af völdum veirunnar en 53,3% íbúa hér á landi hafa greinst með sjúkdóminn Covid-19. Alls hafa 179 látist af völdum sjúkdómsins.

Á mánudag lágu 30 á sjúkrahúsi með sjúkdóminn, þar af 2 á gjörgæsludeild. Þann dag greindust 258 með Covid-19.