Willum Þór Þórsson
Willum Þór Þórsson
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að benda á að ekki liggur fyrir tillaga, útfærsla eða frumvarp til laga um afnám refsingar neysluskammta.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að benda á að ekki liggur fyrir tillaga, útfærsla eða frumvarp til laga um afnám refsingar neysluskammta.

Greint var frá því um helgina að Willum hygðist leggja fram frumvarp um afnám refsingar fyrir veikasta hóp samfélagsins í tilteknum tilvikum með tiltekið magn og efni ávana- og fíkniefna og hafa áformin verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

Gagnrýnt hefur verið að einungis eigi að afnema refsinguna fyrir tiltekinn hóp fólks, slíkt sé ekki framkvæmanlegt og jaðarsetji fólk.

Meðal annars sagði Halldóra Mogensen, formaður þingflokks Pírata, við Morgunblaðið að fulltrúar stórs hluta refsivörslukerfisins sætu inni í starfshópi sem fjallar um málið og hugsanlega væri verið að gera einhverjar málamiðlanir þar.

„Málið er í breiðu samráði í starfshópnum en honum var falið að skilgreina dagskammt eða neysluskammt í tengslum við breytingar á lögum um ávana- og fíkninefni. Sú vinna er í raun forsenda framgangs málsins og það verkefni hefur ekki breyst,“ segir í svari Willums við fyrirspurn mbl.is.

Auk þess kemur fram í svarinu að 13 einstaklingar með fjölbreytta þekkingu og aðkomu að málaflokknum eiga sæti í starfshópnum.