Tveimur tónlistaratriðum hefur verið bætt við tónleikana Rokk í Reykjavík, sem haldnir verða 17. september næstkomandi. Tónleikarnir hafa verið harðlega gagnrýndir fyrir skakkt kynjahlutfall tónlistarmanna, karlmönnum í vil, á samfélagsmiðlinum Twitter.

Björgvin Þór Rúnarsson, eigandi Nordic Live Event, sem heldur tónleikana, segir í samtali við mbl.is að staðið hafi til að kynna leynigest tónleikanna, Röggu Gísla, eftir að miðasala hæfist, þar sem hún væri eina tónlistarkonan. Nú er þó ljóst að hún verður ekki eina tónlistarkonan á tónleikunum, þar sem hljómsveitunum Vicky og SÐSKPR hefur verið bætt við til að bæta kynjahlutfallið.

Björgvin benti á uppfærslu á síðu Vicky í dag, þar sem sveitin gagnrýnir umræðuna og segir aðgerðir mikilvægari: „Það er auðveldara að breyta heiminum þegar við erum öll í sama liði og okkar framlag í þetta skiptið er sýnileikinn sem kallað er eftir.“

Þá segir Björgvin það því miður staðreynd að tónlistarsenan kringum rokktónlist hér á landi standi að stórum hluta saman af karlkyns tónlistarmönnum og hljómsveitum, en hann vill snúa umræðunni að því að fagna þessum tónleikum, sem halda uppi rokki hér á landi.