200 g beikon
1 bolli majónes
2 msk. góð BBQ sósa
2 msk. bragðmikið sinnep
2 msk. sérríedik
2 sellerístönglar, skornir niður
1 rauðlaukur, fínt saxaður
½ bolli söxuð steinselja
1 msk. saxað estragon
Salt og pipar eftir smekk
Steikið beikonið, þerrið með eldhúspappír og skerið í bita (ekki of fínt).
Blandið saman majónesi og BBQ sósu í stórri skál. Bætið við sinnepi og sérríediki.
Blandið kartöflunum saman við meðan þær eru enn volgar. Látið standa og hrærið reglulega í uns kartöflurnar hafa kólnað niður í stofuhita.
Bætið þá við selleríi, rauðlauk, steinselju og estragoni. Saltið og piprið vel. Látið standa í 20 mínútur. Að síðustu er beikoni bætt við og þá er salatið tilbúið.