Einkaþotur Guðmundur segir hugsanlega ástæðu fyrir því að fólki telji að fleiri þotur séu á vellinum en fyrir kórónuveirufaraldurinn vera að einkaþoturnar séu orðnar stærri og fyrirferðarmeiri.
Einkaþotur Guðmundur segir hugsanlega ástæðu fyrir því að fólki telji að fleiri þotur séu á vellinum en fyrir kórónuveirufaraldurinn vera að einkaþoturnar séu orðnar stærri og fyrirferðarmeiri. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Rúmlega 200 einkaþotur lenda mánaðarlega á Reykjavíkurflugvelli, eða sem nemur um sjö vélum á dag að jafnaði.

Tómas Arnar Þorláksson

tomasarnar@mbl.is

Rúmlega 200 einkaþotur lenda mánaðarlega á Reykjavíkurflugvelli, eða sem nemur um sjö vélum á dag að jafnaði. Þetta segir Guðmundur Þengill Vilhelmsson, forstjóri og eigandi Iceland Aero Agents (IAA), í samtali við Morgunblaðið.

IAA þjónustar um helming þessara einkaþotna á Reykjavíkurflugvelli eða um 100 á mánuði. Að sögn Hákons Öder Einarssonar, rekstrarstjóra ACE FBO, annast ACE FBO þjónustu við hinn helminginn.

Þessi tvö fyrirtæki þjónusta nær allar lúxusþoturnar sem lenda á Reykjavíkurflugvelli en að sögn þeirra er Reykjavíkurflugvöllur mjög mikilvægur fyrir lúxusferðalög til Íslands.

Að sögn Guðmundar þjónustar fyrirtækið um 15 vélar á dag þegar mest lætur og sömu sögu er að segja af ACE FBO. Getur því komið fyrir að allt að 30 einkaþotur lendi á Reykjavíkurflugvelli á einum degi. Guðmundur ítrekar þó að dagarnir séu ákaflega misjafnir að þessu leyti.

Jafnvel meira en fyrir Covid

„Það hefur verði veldisvöxtur í þessu í sumar miðað við síðustu sumur vegna kórónuveirufaraldursins. Fólk finnur fyrir rosalegri fjölgun, því það hefur ekki verið vant að sjá svona margar einkaþotur á vellinum síðastliðin tvö ár,“ segir Guðmundur.

Að sögn Guðmundar er fjöldi einkaþotna núna sambærilegur því sem var fyrir kórónuveirufaraldurinn og fjöldinn jafnvel að aukast enn frekar.

Guðmundur segir munaðarferðamennsku á Íslandi í miklum vexti um þessar mundir og að einkaþoturnar leiki þar mikilvægt hlutverk. Hann ítrekar mikilvægi þess og bendir á að þess háttar ferðamennska skili mikilli innkomu fyrir ferðaþjónustuna og ríkissjóð og efli þannig hagvöxtinn.

„Mér finnst þetta mjög jákvæð þróun og jákvætt hvað þetta fólk skilur eftir í ríkiskassanum.“

Ýmsir kostnaðarliðir einkaþota

Einkaþotur á Reykjavíkurflugvelli hafa verið mikið í umræðunni undanfarið en sumir telja þau gjöld sem þurfi að greiða fyrir komu á einkaþotu til landsins vera of lág og hafa aðrir jafnvel grínast með að ódýrara sé að leggja einkaþotu á flugvellinum en að leggja bíl í miðbænum. Samkvæmt gjaldskrá Isavia fyrir Reykjavíkurflugvöll kostar ekkert að leggja einkaþotu á vellinum fyrstu sex tímana en eftir það eru rukkaðar 1.545 krónur fyrir hvert tonn af hámarksflugtaksmassa þotunnar fyrir sólarhring en 945 krónur á tonn eftir fyrstu tvo sólarhringana. Hámarksflugtaksmassi þotunnar Gulfstream G650 er 45,2 tonn og miðað við það myndi fyrsti sólarhringurinn kosta um 70 þúsund krónur. Ofan á það kemur síðan lendingargjald, farþegagjöld, flugverndargjald og fleira, sem um munar. Bílastæði í miðbæ Reykjavíkur kostar um 3.465 krónur á sólarhring.