Veisla fyrir bragðlaukana Lambið passar einstaklega vel með myntu chimichurri sósunni.
— Ljósmynd/Valgerður - GRGS.is
Lambakjöt klikkar aldrei á grillinu, enda í uppáhaldi hjá ansi mörgum. Lambaprime er þar framarlega í flokki. Það getur verið dálítil kúnst að elda það en reglan er sú að það á að vera vel eldað fremur en hitt. Hér er uppskrift frá Valgerði á GRGS.is sem býður jafnframt upp á æðislega sósu með.
2 pakkningar lambaprime frá Goða
1 poki veislusalat
1/2 poki klettasalat
1 box kokteiltómatar skornir í tvennt
1/2 agúrka, skorin í bita
1/4 rauðlaukur skorinn í þunnar sneiðar
20 svartar ólífur skornar í tvennt
1 krukka fetaostur eftir smekk
Myntu-chimichurri
Einn hnefi fersk steinselja án stilka (u.þ.b. hálfur poki)
Einn hnefi fersk mynta án stilka (u.þ.b. hálf pakkning)
2 hvítlauksrif, skorin gróft
1 dl góð ólífuolía
2 msk rauðvínsedik
1/2 tsk chiliflögur
1 tsk sjávarsalt (alls ekki nota venjulegt borðsalt)
1/4 rauðlaukur, skorinn mjög smátt
Setjið allt nema rauðlaukinn í matvinnsluvél og látið hana vinna maukið smátt. Setjið svo rauðlaukinn saman við og berið fram með lambinu.