Paradís Gleði ríkir á meðal baðgesta en Tinna segir böðin frábæra viðbót við þá afþreyingu sem er fyrir á svæðinu.
Paradís Gleði ríkir á meðal baðgesta en Tinna segir böðin frábæra viðbót við þá afþreyingu sem er fyrir á svæðinu. — Ljósmynd/Axel Þórhallsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ísland vaknar og Helgarútgáfan verða í beinni útsendingu frá Akureyri um næstkomandi helgi á útvarpsstöðinni K100.

Ísland vaknar og Helgarútgáfan verða í beinni útsendingu frá Akureyri um næstkomandi helgi á útvarpsstöðinni K100. Þáttastjórnendur Ísland vaknar kynnast fjársjóðum höfuðstaðar Norðurlands og nágrennis og verða meðal annars í beinni frá hinum stórkostlegu Skógarböðum á föstudagsmorgun. Við elskum að ferðast!

Ásthildur Hannesdóttir

asthildur@mbl.is

Tinna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna við Vaðlaskóg á Akureyri, segir sumarið á Norðurlandi hafa farið vel af stað. Hún segir Skógarböðin frábæra viðbót við allt það sem Akureyri og nærsveitir hafa upp á að bjóða enda sé fallegt útsýni á svæðinu, hvert sem litið er.

„Það hefur verið mikill og góður gangur síðan við opnuðum í maí. Stöðugur straumur frá morgni til kvölds, virka daga jafnt sem um helgar,“ segir Tinna um gengi Skógarbaðanna.

Öll flóran flykkist á svæðið

Fjölbreytileikinn virðist einkenna baðgesti Skógarbaðanna en þangað sækir fólk úr ýmsum áttum.

„Til okkar koma innlendir ferðamenn og heimamenn hérna á svæðinu en við erum líka að fá marga erlenda ferðamenn,“ segir Tinna. Mikill fjöldi farþega á skemmtiferðaskipum, sem lagst hafa að bryggju á Akureyri síðustu vikur, hefur lagt leið sína í Skógarböðin og síður en svo orðið fyrir vonbrigðum með böðin.

„Erlendu gestirnir okkar eru bæði þeir sem eru að ferðast um landið en ekki síður farþegar á skemmtiferðaskipum hérna á Akureyri,“ segir Tinna. „Það eru að leggjast hérna að landi um 200 skemmtiferðaskip í sumar og farþegarnir eru margar þúsundir. Oftar en ekki eru tvö til þrjú skip á dag að leggjast hérna að bryggju,“ útskýrir Tinna sem kveðst vel finna fyrir ferðamannastraumnum frá skemmtiferðaskipunum.

„Það ríkir almenn gleði á meðal baðgesta. Umhverfið og útsýnið allt um kring er stórbrotið,“ segir hún.

Augnakonfekt í útjaðri Akureyrar

Skógarböðin eru rétt í útjaðri Akureyrar, rétt handan við rætur Vaðlaheiðar en vatnið sem rennur í böðin er nýtt úr heitavatnsæð sem fannst fyrir tilviljun við gerð Vaðlaheiðarganga á sínum tíma. Böðin eru umkringd fallegu skóglendi sem þykir algert augnakonfekt í augum innlendra sem erlendra baðgesta. Á svæðinu er einnig að finna veitingastaðinn Skóg bistro sem allir geta heimsótt, hvort sem farið er ofan í böðin eða ekki.

„Við fáum mikið af fyrirspurnum frá ferðamönnum og farþegum skemmtiferðaskipanna sem teygja sig alveg langt fram á vetur,“ segir Tinna og er að vonum ánægð með viðtökurnar.

Skógarböðin skemmtileg viðbót

„Akureyri hefur stimplað sig inn sem æðislegur áfangastaður, enda höfuðborg norðursins. Bæði Íslendingurinn og erlendi ferðamaðurinn eru farnir að heimsækja Akureyri í auknum mæli. Þar er alltaf eitthvað um að vera, eitthvað við allra hæfi. Ég held að það hafi líka hjálpað mikið að fá svona afþreyingarstað eins og Skógarböðin á svæðið. Fyrir þær sakir dvelur fólk lengur á svæðinu,“ segir Tinna að lokum.