Halldór Jón Sigurður Þórðarson, leikmaður ÍBV, var besti leikmaður 13. umferðar Bestu deildar karla að mati Morgunblaðsins. Halldór gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk ÍBV í 3:2-sigrinum á Val, sem var fyrsti sigur liðsins í sumar.

Halldór Jón Sigurður Þórðarson, leikmaður ÍBV, var besti leikmaður 13. umferðar Bestu deildar karla að mati Morgunblaðsins. Halldór gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk ÍBV í 3:2-sigrinum á Val, sem var fyrsti sigur liðsins í sumar. Fékk hann tvö M fyrir frammistöðuna, líkt og átta aðrir leikmenn. Ísak Snær Þorvaldsson, markahæsti leikmaður deildarinnar, er í liðinu í sjöunda sinn og þeir Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, og Logi Tómasson, bakvörður Víkinga, í þriðja sinn. johanningi@mbl.is