Mark Snædís María Jörundsdóttir gæti fagnað mörkum með Keflavík.
Mark Snædís María Jörundsdóttir gæti fagnað mörkum með Keflavík. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Knattspyrnukonan unga, Snædís María Jörundsdóttir, hefur verið lánuð til Keflavíkur frá Stjörnunni en bæði lið leika í Bestu deildinni. Snædís, sem er fædd árið 2004, hefur komið við sögu í sjö leikjum með Stjörnunni á leiktíðinni.

Knattspyrnukonan unga, Snædís María Jörundsdóttir, hefur verið lánuð til Keflavíkur frá Stjörnunni en bæði lið leika í Bestu deildinni. Snædís, sem er fædd árið 2004, hefur komið við sögu í sjö leikjum með Stjörnunni á leiktíðinni. Hún hefur alls leikið 30 leiki í efstu deild og skorað í þeim tvö mörk.

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, sem var hjá Keflavík að láni frá Breiðabliki, er hins vegar komin aftur í Kópavoginn. Hún lék fjóra leiki með Keflavík í deildinni og skoraði tvö mörk.