Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fagnar því að Íslandi hafi verið raðað í fyrsta flokk yfir varnir gegn mansali af bandarískum stjórnvöldum á ný og segir mikilvægt að halda áfram á sömu braut.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fagnar því að Íslandi hafi verið raðað í fyrsta flokk yfir varnir gegn mansali af bandarískum stjórnvöldum á ný og segir mikilvægt að halda áfram á sömu braut.

„Þetta endurspeglar þær áherslur sem hafa verið lagðar á þessa hlið mála í nokkurn tíma og það hefur tekist vel og ýmsar aðgerðir sem hefur verið gripið til,“ segir Jón í samtali við mbl.is.

„Segja má að mál sem ég til að mynda lagði fram í vetur og fékk samþykkt á þingi í vor um bætta réttarstöðu brotaþola og annað, það er auðvitað allt sem tengist þessu.

Síðan er aukin áhersla sem við leggjum nú á skipulagða brotastarfsemi, varnir gegn því og slíkt, sem mun líta dagsins ljós í haust. Þetta er allt hluti af sömu myndinni og þungt áherslumál.“

Ísland hafði verið í fyrsta flokki frá árinu 2001 í árlegri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, en féll í annan flokk árið 2017.

Borin kennsl á fleiri þolendur mansals

„Aukið fjármagn hefur verið veitt, það var skipaður starfshópur með mörgum aðilum sem að þessu koma og góður árangur hefur náðst í kjölfarið. Það hefur einnig skilað því að það var ákært og sakfellt fyrir mansal hér á landi í fyrsta skipti í tólf ár og borin hafa verið kennsl á fleiri þolendur mansals og þeim veitt viðeigandi aðstoð,“ segir Jón, spurður hvaða breytingar hafi átt sér stað.

„Sérstök upplýsingagátt um mansal var opnuð á vef Neyðarlínunnar, við höfum svo staðið fyrir kynningu með gerð fræðslumyndbanda og öðru, þannig að víðtækari ráðstafanir hafa verið gerðar sem eru að skila þessum ánægjulega árangri í dag,“ bætir hann við.

„Við þurfum að halda áfram á þessari vegferð. Það má nefna breytingar á lögum sem tengjast þessu beint og óbeint, af því að oft er þetta hluti af skipulagðri brotastarfsemi og þarf að meðhöndla sem slíkt. Þar er ég til dæmis með frumvarp í haust,“ segir Jón.