Argentínski körfuknattleiksmaðurinn Pablo César Bertone hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals.
Argentínski körfuknattleiksmaðurinn Pablo César Bertone hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals. Bertone, sem er 32 ára bakvörður, kom til Vals frá Haukum fyrir síðasta tímabil og var lykilleikmaður er liðið varð Íslandsmeistari. Hann skilaði 15 stigum, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar að meðaltali í 33 leikjum fyrir félagið á síðasta tímabili. Bertone lék áður með liðum í Argentínu, á Spáni og Ítalíu en hann er með tvöfalt ríkisfang, argentínskt og ítalskt.