Míla SKE hefur til rannsóknar kaup fjárfestingarsjóðsins Ardian á Mílu.
Míla SKE hefur til rannsóknar kaup fjárfestingarsjóðsins Ardian á Mílu. — Morgunblaðið/Eggert
Samkeppniseftirlitið sendi í gær bréf til helstu hagaðila, er tengjast sölu Símans á Mílu til Ardian France SA, þar sem reifað er frummat þess um áhrif af sölunni.

Samkeppniseftirlitið sendi í gær bréf til helstu hagaðila, er tengjast sölu Símans á Mílu til Ardian France SA, þar sem reifað er frummat þess um áhrif af sölunni. Þá er jafnframt óskað eftir sjónarmiðum um framkomin sjónarmið viðsemjenda og tillögur Ardian í tilefni af sáttaviðræðum, að því er fram kemur í tilkynningu SKE.

Fyrr í mánuðinum gaf SKE út andmælaskjal þar sem sett er fram ítarlegt frummat um samkeppnisleg áhrif af sölu Símans á Mílu. Var þar m.a. kveðið á um að samruni Mílu og Ardian raski samkeppni og samruninn verði því, samkvæmt frumniðurstöðunni, ekki samþykktur af Samkeppniseftirlitinu án skilyrða og/eða með frekari útskýringum af hálfu fyrirtækjanna.

Þann 15. júlí sendu Ardian og Síminn SKE ítarleg sjónarmið þar sem frummatinu var mótmælt og rök færð fyrir því að breyta þyrfti frummati við endanlegt mat á áhrifum samrunans.

„Þegar samrunaaðilar leggja fram tillögur að breytingum eða skilyrðum í tilefni af frummati samkeppnisyfirvalda er að jafnaði framkvæmt svokallað markaðspróf (e. market test) á viðkomandi tillögum. Í markaðsprófi felst meðal annars að hagaðilum eru kynntar viðkomandi tillögur og óskað sjónarmiða þeirra.

Með vísan til þessa hefur Samkeppniseftirlitið í dag sent helstu hagaðilum bréf, þar sem reifað er frummat Samkeppniseftirlitsins og óskað sjónarmiða um framkomin sjónarmið samningsaðila og tillögur Ardian í tilefni af sáttaviðræðum,“ segir í tilkynningunni.

Þá segist SKE jafnframt telja mikilvægt að gefa öllum kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og er óskað eftir þeim fyrir lok dags 28. júlí.