Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fjallaferðir á fallegum sumardögum eru ævintýri. Í þeim verða til skemmtilegar minningar sem koma sér vel á veturna þegar hversdagsleikinn er ráðandi og myrkur yfir. Ég er alveg sem nýr maður eftir daga á hálendinu,“ segir Ingi Berg Ingason tæknifræðingur í Reykjavík. Í Landmannalaugum í síðustu viku hitti blaðamaður Inga, sem þar var með stórum vinahópi sem þar hélt til í nokkra daga – og fór í gönguferðir. Náttúrufar á þessum slóðum er stórbrotið og því margt að sjá og skoða. Fólk undi sér því vel, enda þótt sum væru ofurlítið móð og þreytt eftir langan dag á fjöllum. Slík þreyta er þó að flestra mati endurnærandi.
Uppgönguhryggur og Jökulgil
Í hópnum góða, sem Ingi Berg og Anna Lísa Hassing eiginkona hans tilheyra, er fólk sem hefur tengsl við Stykkishólm eða á þar rætur. Flest eru búsett nú á höfuðborgarsvæðinu og ein af hefðum hópsins er að fara saman í gönguferðir. Þær eru 2-3 í mánuði – og fólk er því í þokkalegu formi á sumrin þegar kemur að krefjandi fjallabrölti.„Veðrið var einstakt og ferðin nánast fullkomin,“ segir Ingi Berg um lengstu göngu hópsins í Landmannalaugum. Þaðan var lagt upp klukkan tíu á morgni og fyrst gengið á fjallið Skalla, þaðan var farið um Uppgönguhrygg og á Grænahrygg – og svo gengið aftur í Laugar fram um Jökulgil. Þetta var hringur, alls 21 kílómetri, og gangan tók alls tíu klukkustundir.
Gullið glóir
„Hvergi á landinu hef ég séð jafn sterka liti í landinu og þarna við Landmannalaugar, þar sem heitir Friðland að Fjallabaki. Líparítið er áberandi og er í sólskini eins og glóandi gull. Gróður þarna er kannski ekki mikill, en er harðgerður og leynir mjög á sér. Staðirnir eru margir þar sem maður stoppar og er hugfanginn. Horfir yfir og segir: Vá. Myndirnar sem maður tekur á símann sinn í svona ferðum eru því margar,“ segir Ingi, sem með sínu fólki fór Laugaveginn á síðasta ári. Þá voru margir á fjöllum en enn fleiri nú. Öllum ber saman um að ferðasumarið 2022 sé frábært – og og lifir þó enn rúm vika af júlímánuði.„Sumarið er tíminn til að gera skemmtilega hluti,“ segir Ingi Berg sem með fjölskyldunni var í gær kominn norður í Eyjafjörð til að njóta og lifa lífinu. Í næstu viku er svo ætlunin að fara í Skaftafell og ganga þar upp um fjöll og firnindi – og skapa með því góðar minningar.