Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þýskaland er komið í undanúrslit Evrópumóts kvenna í knattspyrnu eftir sigur á Austurríki, 2:0, á Brentford-leikvanginum í London í gærkvöld.
Þýska liðið mætir Frakklandi eða Hollandi í undanúrslitum næsta miðvikudagskvöld. Þau lið eigast við í Rotherham annað kvöld, í síðasta leik átta liða úrslitanna.
Lina Magull kom Þýskalandi yfir á 26. mínútu eftir sendingu frá Klöru Bühl og staðan var 1:0 í hálfleik.
Upphafsmínútur síðari hálfleiks voru líflegar en Þýskaland átti stangarskot eftir 17 sekúndur og Austurríki sláarskot skömmu síðar. Þær austurrísku voru áfram hættulegar og áttu skot í stöng á 57. mínútu.
Fjórða markið frá Popp
Spennan varði fram á lokamínútur en þegar rúmlega 89 mínútur voru liðnar, skoraði Alexandra Popp sitt fjórða mark á Evrópumótinu og kom Þjóðverjum í 2:0. Þar með voru úrslitin ráðin en lið Austurríkis átti allan tímann möguleika og er það lið sem hefur komið einna mest á óvart á þessu Evrópumóti.Popp hefur skorað í öllum fjórum leikjum Þýskalands og virðist sem stendur í baráttu við hina ensku Beth Mead um markadrottningartitilinn. Þýska liðið hefur enn ekki fengið á sig mark á þessu Evrópumóti.
Þriðji leikur átta liða úrslitanna fer fram í kvöld, þegar Svíþjóð og Belgía mætast í Leigh, á heimavelli kvennaliðs Manchester United. Sigurliðið í þeim leik mætir Englandi á þriðjudagskvöldið.