Ásta Sigmundsdóttir
Ásta Sigmundsdóttir — Morgunblaðið/RAX
Látin er Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir verslunarkona en hún var elst kvenna á Íslandi og hefði orðið 105 ára eftir mánuð. Ásta fæddist á Ísafirði 22. ágúst 1917, dóttir Sigmundar Brandssonar og Júlíönu Óladóttur.

Látin er Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir verslunarkona en hún var elst kvenna á Íslandi og hefði orðið 105 ára eftir mánuð.

Ásta fæddist á Ísafirði 22. ágúst 1917, dóttir Sigmundar Brandssonar og Júlíönu Óladóttur. Hún giftist Gunnari Þorsteini Þorsteinssyni, járn- og rennismiði, sem lést árið 2008, og eignuðust þau fjögur börn: Sigrúnu Björk, Júlíönu Signýju, Óðin og Önnu Margréti. Ásta fékkst lengst af við verslunarrekstur í Kópavogi.