Neil Patrick Harris fer með aðalhlutverkið.
Neil Patrick Harris fer með aðalhlutverkið. — AFP/Theo Wargo
Spé Uncoupled nefnast nýir gamanþættir sem aðgengilegir verða á efnisveitunni Netflix frá og með 29. þessa mánaðar. Þar leikur Neil Patrick Harris mann að nafni Michael sem lendir í þeim ósköpum að eiginmaður hans yfirgefur hann eftir 17 ára samband.
Spé Uncoupled nefnast nýir gamanþættir sem aðgengilegir verða á efnisveitunni Netflix frá og með 29. þessa mánaðar. Þar leikur Neil Patrick Harris mann að nafni Michael sem lendir í þeim ósköpum að eiginmaður hans yfirgefur hann eftir 17 ára samband. Þegar Michael nær vopnum sínum eftir áfallið reynir hann að fóta sig sem einhleypur maður en áttar sig fljótt á því að stefnumótamenning þessa heims hefur tekið stakkaskiptum frá því sem áður var. Þættirnir eru úr smiðju Darrens Stars, höfundar Sex and the City og Emily in Paris, og komust í fréttirnar í fyrra þegar húshjálp af rómönsku bergi brotin var skrifuð út úr seríunni eftir að leikkonan Ada Maris komst yfir handritið og sagði að tilvist persónunnar væri bæði smánarleg og niðurlægjandi.