30 ára Diljá er fædd og uppalin í miðbæ Reykjavíkur. Hún er búsett í Belgíu um þessar mundir en heimsækir Ísland á sumrin til að vinna.
30 ára Diljá er fædd og uppalin í miðbæ Reykjavíkur. Hún er búsett í Belgíu um þessar mundir en heimsækir Ísland á sumrin til að vinna. Diljá er að læra klassískan söng við Konunglega listaháskólann í Antwerpen og lauk þar bakkalárgráðu síðastliðið vor og heldur svo út í meistaranám í haust. Hún ætlar að njóta afmælisdagsins í faðmi fjölskyldu og vina.

Fjölskylda Foreldrar Diljár eru: Pétur Ævar Óskarsson, f. 1946, bifvélavirki, og Unnur Melberg Sigurgísladóttir, f. 1950, fyrrverandi starfsmaður í umönnun. Systkini Diljár eru: 1) Sigurbjörn Agnar, f. 1973. 2) Brynhildur Sædís, f. 1976. 3) Arnheiður Melkorka, f. 1984.