Amber Heard
Amber Heard
Amber Heard hefur ákveðið að áfrýja dóminum sem hún hlaut fyrr í sumar í meiðyrðamáli Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni.
Amber Heard hefur ákveðið að áfrýja dóminum sem hún hlaut fyrr í sumar í meiðyrðamáli Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni. Samkvæmt dóminum var Heard gert að greiða Depp yfir 10 milljónir dala fyrir að hafa lýst sér sem þolanda heimilisofbeldis í grein sem birtist í Washington Post 2018. „Að okkar mati voru mistök gerð í dómsmálinu sem hindruðu möguleika skjólstæðings okkar á réttlátum og sanngjörnum dómi í samræmi við fyrstu viðbót stjórnarskrárinnar. Þess vegna var ákveðið að áfrýja,“ segir talsmaður Heard og The Guardian greinir frá.