Dúó Mikael Máni og Anna Sóley.
Dúó Mikael Máni og Anna Sóley.
Í tilefni útgáfu smáskífunnar Brighter Day halda systkinin Anna Sóley og Mikael Máni ókeypis tónleika í Smekkleysu Plötubúð við Hjartatorg í dag, laugardag, kl. 14. Áætlað er að tónleikarnir taki um 40 mínútur.
Í tilefni útgáfu smáskífunnar Brighter Day halda systkinin Anna Sóley og Mikael Máni ókeypis tónleika í Smekkleysu Plötubúð við Hjartatorg í dag, laugardag, kl. 14. Áætlað er að tónleikarnir taki um 40 mínútur. Í tilkynningu kemur fram að lagið „Brighter Day“ sé „forsmekkur af væntanlegri breiðskífu sem kemur út í haust undir nafninu Modern Age Ophelia . Platan verður gefin út af Smekkleysu og mun innihalda lög og texta eftir Önnu Sóleyju.“ Er væntanlegri plötu m.a. lýst sem blöndu af nútímadjassi, poppi og alþýðutónlist.