Hvilft í Önundarfirði
Hvilft í Önundarfirði
Magnús Einarsson fæddist 23. júlí 1809 í Kollafjarðarnesi á Ströndum, sonur Einars Jónssonar dannebrogsmanns, á Kollafjarðarnesi og eiginkonu hans, Þórdíar Guðmundsdóttur. Tvíburabróðir Magnúsar var Ásgeir Einarsson alþingismaður.

Magnús Einarsson fæddist 23. júlí 1809 í Kollafjarðarnesi á Ströndum, sonur Einars Jónssonar dannebrogsmanns, á Kollafjarðarnesi og eiginkonu hans, Þórdíar Guðmundsdóttur. Tvíburabróðir Magnúsar var Ásgeir Einarsson alþingismaður. Magnús átti annan bróður, Torfa Einarsson, sem einnig var alþingismaður.

Magnús var íslenskur bóndi sem braust úr sárri fátækt, komst í álnir og gerðist stórbóndi á Hvilft í Önundarfirði.

Hann var helsti stuðningsmaður Jóns forseta á Vestfjörðum og var jafnframt varamaður hans sem alþingismaður fyrstu árin. Á þessum árum var enn mikilvægara en nú að hafa góða stuðningsmenn heima í héraði, því í þessum fyrstu kosningum til Alþingis var Jón Sigurðsson úti í Kaupmannahöfn og þurfti því alfarið að treysta á menn heima í héraði. Í skrifum Lúðvíks Kristjánssonar fræðimanns, eftir hans miklu rannsóknir, er berlega ljóst að Magnús á Hvilft er maðurinn sem Íslendingar eiga að þakka hina traustu forystu í baklandi Jóns á Vestfjörðum og gaf honum undirstöðu til sinnar kröftugu sjálfstæðisbaráttu. Magnús lést 27. maí 1870.