Úlfakreppa. S-NS
Norður | |
♠93 | |
♥ÁD3 | |
♦ÁD42 | |
♣10653 |
Vestur | Austur |
♠KD5 | ♠Á1076 |
♥-- | ♥G652 |
♦G9765 | ♦103 |
♣9842 | ♣KG7 |
Suður | |
♠G842 | |
♥K109874 | |
♦K | |
♣ÁD |
Suður spilar 5♥.
„Ég myndi nú ekki kalla þetta vandamál. Og þraut er þetta alveg örugglega ekki. Nei, þetta minnir mest á úlfakreppu Amlóða – að vera eða vera ekki.“ Enn einu sinni hafði Óskar grafið upp verðugt viðfangsefni frá bandarísku bikarkeppninni. Jeff Meckstroth vann 4♥ á öðru borðinu, en hinum megin þvældust NS upp á fimmta þrep í slemmuleit og þar byrjaði vörnin með ♠KD og þriðja spaðanum. Sagnhafi trompaði smátt og tók á ♥Á. Einn niður.
Þetta er rosalega grunsamleg vörn,“ sagði Gölturinn, sem var búinn að spotta vinningsleiðina: „Við tökum strax tvo slagi á lauf með svíningu, spilum hjarta og sjáum leguna, trompum lauf, yfirdrepum tígulkóng, hendum spaða í tíguldrottningu og trompum tígul. Spilum loks trompi á blindan og svíðum hjartaprinsinn af austri í tveggja spila endastöðu.“
„Þetta er að þora að vera til,“ sagði Magnús, stórhrifinn.