Í gær náðu Síminn hf. og Ardian France SA samkomulagi um tilteknar breytingar á samningum sín á milli vegna kaupa og sölu á 100% hlutafjár í Mílu ehf. Heildarvirði viðskiptanna lækkar um 5 milljarða.

Í gær náðu Síminn hf. og Ardian France SA samkomulagi um tilteknar breytingar á samningum sín á milli vegna kaupa og sölu á 100% hlutafjár í Mílu ehf. Heildarvirði viðskiptanna lækkar um 5 milljarða. Þetta kom fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar.

Þar segir að heildarvirði viðskiptanna lækki úr 78 milljörðum í 73 milljarða.

Samkvæmt breyttum kaupsamningi fær Síminn greitt á efndadegi um 35 milljarða króna í reiðufé og 19 milljarðar króna verða lánaðir í formi skuldabréfs sem Síminn veitir kaupanda til þriggja ára. Skuldabréfið var áður 15 milljarðar króna.

Leiða þessar breytingar á kaupsamningnum til þess að áætlaður söluhagnaður er 41,8 milljarðar króna, að teknu tilliti til kostnaðar vegna viðskiptanna. Það er lækkun um 4,6 milljarða króna frá því sem tilkynnt var þann 23. október 2021.