Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Ingibjörg Sigurjónsdóttir leiðir gesti um sýningu sína De rien í Kling & Bang á morgun, sunnudag, kl. 14, sem er síðasti sýningardagur sýningarinnar.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir leiðir gesti um sýningu sína De rien í Kling & Bang á morgun, sunnudag, kl. 14, sem er síðasti sýningardagur sýningarinnar. Á sýningunni stillir Ingibjörg fram þrettán nýjum höggmyndum, teikningum, lágmyndum og rýmisverkum, sem unnin voru sérstaklega fyrir rýmið. Í tilefni af sýningunni er komin út fyrsta bók Ingibjargar, Heiglar hlakka til heimsendis , sem gefin er út af Tunglinu forlagi. Ingibjörg hlaut fyrr í vikunni styrk úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi fyrir listsköpun sína.