Flott Shonka Dukureh fór með hlutverk Big Mama Thornton í myndinni Elvis.
Flott Shonka Dukureh fór með hlutverk Big Mama Thornton í myndinni Elvis.
Aðeins mánuði eftir frumraun sína á hvíta tjaldinu fannst leikkonan Shonka Dukureh látin á heimili sínu í Nashville. Þessu greinir The Guardian frá.

Aðeins mánuði eftir frumraun sína á hvíta tjaldinu fannst leikkonan Shonka Dukureh látin á heimili sínu í Nashville. Þessu greinir The Guardian frá. Dukureh, sem varð aðeins 44 ára, fór með hlutverk Big Mama Thornton í kvikmyndinni Elvis í leikstjórn Baz Luhrmann. Þar vakti flutningur Dukureh á laginu „Hound Dog“, sem Thornton tók upp fjórum dögum á undan Elvis Presley árið 1952, mikla athygli í tengslum við frumsýningu myndarinnar.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Nashville bjó Dukureh með tveimur ungum börnum sínum og var það annað þeirra sem kom að henni látinni og hringdi í neyðarlínuna. Lögreglan segir ekkert benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti, en beðið er niðurstöðu krufningar.