Prósentur. S-AV
Norður | |
♠ÁG103 | |
♥Á7 | |
♦976 | |
♣10742 |
Vestur | Austur |
♠9652 | ♠874 |
♥D10952 | ♥K84 |
♦ÁG5 | ♦D1084 |
♣5 | ♣D96 |
Suður | |
♠KD | |
♥G63 | |
♦K32 | |
♣ÁKG83 |
Suður spilar 3G.
Gölturinn gefur lítið fyrir prósentureikning: „Prósentur eru ágætar utan á vínflöskum en þær skipta litlu máli við spilaborðið. Þar dugir að geta talið upp í þrettán.“ Máli sínu til áherslu teiknaði hann upp stöðumynd dagsins og sýndi fuglunum – 3G með ♥10 út.
„Huglausir prósentuspilarar stinga upp hjartaás og taka ás-kóng í laufi. Þeir fá réttláta útreið. Kjarkmeiri sagnhafar óttast ekki tígulsviss og setja lítið í fyrsta slag. Austur tekur á hjartakóng og spilar hjartaáttu um hæl, sem bendir til að hann hafi byrjað með þrílit. Þá er næst að taka laufás og fjóra slagi á spaða. Þegar vestur reyndist eiga fjórlit í spaða til hliðar við líklegan fimmlit í hjarta er ljóst að plássið fyrir laufdrottningu er töluvert meira í austur en vestur. Þið getið svo sem reiknað út muninn í prósentum ef þið nennið, en þetta dugir mér til að svína laufgosa.“