Jóhanna Sveinfríður Júlíusdóttir fæddist 24. september 1950. Hún lést 19. júlí 2022. Útför fór fram 29. júlí 2022.

Elsku hjartans Hanna mín, þakka þér fyrir allt, hvað þú varst góð vinkona, eina vinkonan sem ég hef átt. Stundum ef mér leið ekki vel kom ég til þín og það var nóg, vanlíðanin hvarf. Þú varst svo einstök, aldrei neitt vesen, þú gast hlegið að öllu þínum fallega hlátri og mikið sakna ég að sjá brosið þitt fallega. Það verður erfitt að geta ekki komið til þín eða þú til mín. Veistu að ég hef oft hugsað um að það hefði átt að skrifa um þig bók, um lífshlaup þitt, sem hefur verið svo ótrúlega fjölbreytt. Engum hefði leiðst að lesa um það. Ég elska þig, þú varst stórkostleg, falleg og vel gefin og elsku Hanna mín, faðmaðu hana elsku Ingu mína fyrir mig. Ég kveð þig með söknuði en líka miklu þakklæti. Elsku Binni minn og fjölskyldan öll, innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Ég veit að þið haldið vel hvert utan um annað.

Heiðbjört.