Júlíus Jón Jónsson hættir sem forstjóri HS Veitna um áramót.
Júlíus Jón Jónsson hættir sem forstjóri HS Veitna um áramót.
Stjórnendur Júlíus Jón Jónsson, forstjóri HS Veitna, mun láta af störfum hjá félaginu um komandi áramót eftir 40 ár í starfi. Starf forstjóra var auglýst um nýliðna helgi og er umsóknarfrestur til og með 21. ágúst nk.

Stjórnendur

Júlíus Jón Jónsson, forstjóri HS Veitna, mun láta af störfum hjá félaginu um komandi áramót eftir 40 ár í starfi. Starf forstjóra var auglýst um nýliðna helgi og er umsóknarfrestur til og með 21. ágúst nk.

Júlíus Jón hefur verið forstjóri HS Veitna frá ársbyrjun 2014. Hann var áður forstjóri HS Orku og forvera þess, Hitaveitu Suðurnesja, frá 1992 og fjármálastjóri sama félags frá 1982. Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvö félög, HS Orku og HS Veitur, árið 2008 og gegndi Júlíus Jón forstjórastarfi beggja félaga til loka árs 2013.