Atli Sigurjónsson úr KR var besti leikmaður 16. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.
Atli Sigurjónsson úr KR var besti leikmaður 16. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Atli gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á móti ÍBV síðastliðinn sunnudag og fékk tvö M fyrir frammistöðuna, eins og fjórir aðrir leikmenn í umferðinni. Emil Atlason og Eggert Aron Guðmundsson úr Stjörnunni fengu einnig tvö M, eins og Nökkvi Þeyr Þórisson úr KA og Aron Jóhannsson úr Val. Nökkvi er í liði umferðarinnar í fimmta skipti. Logi Tómasson hjá Víkingi er í liðinu í fjórða skipti. Þá eru þeir Atli Sigurjónsson, Emil Atlason og Magnús Þórðarson úr Fram í liði umferðarinnar í þriðja skipti. Frederik Schram, Aron Kristófer Lárusson og Dusan Brkovic eru í fyrsta skipti í liði umferðarinnar.