[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útflutningur á jarðefnum frá landinu meira en tuttugufaldast ef þau miklu áform sem nú eru uppi um útflutning á vikri af Mýrdalssandi og móbergi úr Þrengslunum verða að veruleika. Heildartekjur af útflutningnum gætu orðið yfir 20 milljarðar króna. Útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna sementsframleiðslu í Evrópu myndi minnka verulega við notkun íslensku jarðefnanna en mikill akstur með efnið austan af Mýrdalssandi dregur vissulega úr þeim ávinningi.

Baksvið

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Útflutningur á jarðefnum frá landinu meira en tuttugufaldast ef þau miklu áform sem nú eru uppi um útflutning á vikri af Mýrdalssandi og móbergi úr Þrengslunum verða að veruleika. Heildartekjur af útflutningnum gætu orðið yfir 20 milljarðar króna. Útblástur gróðurhúsalofttegunda vegna sementsframleiðslu í Evrópu myndi minnka verulega við notkun íslensku jarðefnanna en mikill akstur með efnið austan af Mýrdalssandi dregur vissulega úr þeim ávinningi.

Margar tilraunir hafa verið gerðar með útflutning á jarðefnum frá Íslandi, einkum vikri, frá vikursvæðunum á Suðurlandi en einnig úr námum undir Snæfellsjökli. Flestar hafa tilraunirnar mistekist. Langlífastur hefur verið útflutningur á Hekluvikri. Tvö fyrirtæki hafa aðallega verið í honum, Jarðefnaiðnaður og BM Vallá, sem bæði flytja út frá Þorlákshöfn. Síðarnefnda fyrirtækið hefur mjög dregið úr útflutningi en Jarðefnaiðnaður hefur haldið sínu striki og flytur út um 85 þúsund rúmmetra af Hekluvikri á ári, mest til Vestur-Evrópu en einnig til Bandaríkjanna. Vikurinn er mest notaður í framleiðslu á hleðslusteini og í ræktunarjarðveg.

Önnur fyrirtæki stunda útflutning en í mun smærri stíl.

Nokkur verkefni sem snúast um jarðefnanám, vinnslu og útflutning hafa verið í undirbúningi hér á undanförnum árum. Stórtækast er fyrirtækið EP Power Minerals sem keypti jörðina Hjörleifshöfða á Mýrdalssandi og áformar útflutning á Kötluvikri úr námu sem er skammt frá Hafursey. Fyrirtækið sérhæfir sig í að selja sementsframleiðendum íblöndunarefni. Þegar útflutningurinn verður kominn á skrið er áformað að flytja um 1,43 milljón rúmmetra á ári með flutningabílum til Þorlákshafnar og þaðan með skipum til Evrópu.

Hitt fyrirtækið er Eden Mining sem stundað hefur útflutning á jarðefnum í smáum stíl en hyggst margfalda starfsemina í samstarfi við þýska sementsframleiðandann Heidelberg. Hyggst fyrirtækið nýta Litla-Sandfell í Þrengslum, að fullu eða hluta, og flytja efnið til Þorlákshafnar þar sem Heidelberg tekur við og vinnur efnið áfram til útflutnings. Rætt er um flutning á 625 þúsund rúmmetrum af móbergi á ári og að um 80% af því verði flutt úr landi. Aðeins 18 kílómetrar eru frá námunni til Þorlákshafnar þannig að ekki skapast sömu vandkvæði fyrir vegi og umferð og vegna verkefnisins á Mýrdalssandi.

Þriðja verkefnið er mun minna í sniðum en er komið á framkvæmdastig, það er framleiðsla og útflutningur á sandblástursefni úr fjörunni austan við Vík í Mýrdal.

Íblöndun í sement

Bæði stóru verkefnin, á Mýrdalssandi og við Sandfell, snúast um að útvega íblöndunarefni í sement. Efnið á að koma í stað flugösku sem fellur til í kolaverum sem framleiða rafmagn í Evrópu. Askan er ódýrt en gott íblöndunarefni. Stefnan hefur verið að draga úr notkun kola og loka kolaverum þótt frestun kunni að hafa orðið á því nú vegna orkuskorts í kjölfar árásar Rússa á Úkraínu. Sementsframleiðendur hafa lengi leitað að efnum í staðinn.

Sementsframleiðslu fylgir mikil losun gróðurhúsalofttegunda og hafa sementsframleiðendur einnig leitað leiða til að draga úr henni.

Kötluvikur virðist vera heppilegur til íblöndunar í sement og geta dregið verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Sömuleiðis jarðefnin sem Heidelberg hyggst vinna í stórri verksmiðju við höfnina í Þorlákshöfn og flytja til Þýskalands. Það er ókostur við efnisnámið á Mýrdalssandi að flytja þarf vikurinn langa leið til Þorlákshafnar og það dregur úr umhverfisávinningi. Hins vegar er stutt frá Sandfelli til Þorlákshafnar og ekki um byggð að fara. Hugsanlegt er að finna aðrar leiðir til að flytja efnið frá Sandfelli til Þorlákshafnar, til dæmis með færiböndum eða lest. Þá hefur verið bent á að hugsanlegur möguleiki sé að dæla efninu á Mýrdalssandi beint út í skip. Einhverjar athuganir munu hafa verið gerðar á því en niðurstöður þeirra hafa ekki verið birtar.

Minnkar útblástur

Vikur og sandur er víða til og er fluttur í miklu magni til framleiðslulanda Vestur-Evrópu auk þess sem námur er enn að finna innan landamæra ríkjanna. Fyrirtækin sem leita til Íslands virðast telja að aðstæður hér henti til starfseminnar og efnin hafi þá eiginleika sem þurfi. Þannig kannaði EPPM námur í allri Evrópu og taldi að lokum að engin vikurnáma væri sambærileg Háöldu á Mýrdalssandi af mörgum ástæðum, meðal annars vegna gæða vikursins og magns sem er næstum óþrjótandi.

Drjúgur hluti losunar gróðurhúsalofttegunda stafar af byggingastarfsemi og þar er sementsframleiðsla stór þáttur. Hún er ábyrg fyrir 8% af allri koldíoxíðlosun í heiminum. Með því að auka hlut móbergs og vikurs í sementinu er hægt að draga úr notkun sementsgjalls, svokallaðs klinkers. Við framleiðslu á einu tonni af sementsklinker losna 842 tonn af CO2, að því er fram kemur í umhverfismatsskýrslu Eden Mining vegna námugraftrar í Litla-Sandfelli.

Áætla má að heildartekjur af útflutningi jarðefna úr þessum tveimur verkefnum geti orðið yfir 20 milljarðar á ári og þau skapa fjöldamörg störf og tekjur fyrir sveitarfélög og þjónustufyrirtæki. Ef vel gengur getur ábatinn einnig orðið mikill. Sérstaklega kann það að eiga við Mýrdalssand því fyrirtækið sjálft á námuna og þarf ekki að greiða landeigendum.

Tækifæri í Þorlákshöfn

Þorlákshöfn er miðpunkturinn í útflutningnum, eins og í fleiri atvinnuþróunarverkefnum. Elliði Vignisson bæjarstjóri bindur sérstakar vonir við útflutninginn úr námunni í Þrengslum vegna þess að Heidelberg muni vinna efnið í Þorlákshöfn. Hann segist minna vita um EPPM þótt verkefnið hafi verið kynnt lauslega fyrir stjórnendum sveitarfélagsins.

Heidelberg hefur sótt um tólf lóðir við höfnina fyrir risastóra verksmiðju til að vinna móbergið. Tekur Elliði fram að ef það verkefni verði að veruleika þurfi að stækka höfnina í Þorlákshöfn tafarlaust, til viðbótar þeirri stækkun sem nú er unnið að.