München Hilmar Örn Jónsson býr sig undir að kasta sleggunni í úrslitunum á Evrópumótinu í München í Þýskalandi í gærkvöldi.
München Hilmar Örn Jónsson býr sig undir að kasta sleggunni í úrslitunum á Evrópumótinu í München í Þýskalandi í gærkvöldi. — AFP/Andrej Isakovic
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Frjálsar Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.

Frjálsar

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

„Ég var svolítið svekktur með árangurinn í dag,“ viðurkenndi sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson í samtali við Morgunblaðið eftir að hann hafnaði í tólfta sæti í greininni á Evrópumótinu í München í Þýskalandi í gærkvöldi.

Hilmar tryggði sér sæti í úrslitum með góðum árangri í undanriðli. Þar kastaði hann 76,33 metra, sem er hans besta kast á árinu. Í gær náði hann hins vegar aðeins einu gildu kasti, 70,03 metra, í þremur tilraunum. Íslandsmet hans er 77,10 metrar og var hann því nokkuð frá sínu besta í úrslitunum.

Töfin hafði áhrif

„Ég er ánægður með hvernig ég bar mig út á velli og var tilbúinn í þetta. Ég náði því miður ekki að setja saman kast, en ég var alveg klár og tilbúinn. Ég á eftir að fara betur yfir með þjálfaranum mínum hvað klikkaði en það vantaði ekkert. Það er örugglega hægt að finna ástæðu fyrir því hvers vegna ég gat ekki sett saman gott kast en svona var þetta í dag,“ sagði hann.

Vegna mikillar úrkomu þurfti að seinka keppni um 20 mínútur og Hilmar viðurkennir að það hafi haft áhrif á undirbúning sinn fyrir úrslitin. „Rigningin hafði ekki mikil áhrif á mig. Eina sem hafði áhrif var töfin, því ég var í banastuði á æfingasvæðinu en svo þurftum við að bíða í skjóli í 20 mínútur. Það dró úr mér en ég læri af því.“

Í hörkustuði og sýndi það

Hilmar er fyrsti Íslendingurinn í sögunni sem kemst í úrslit í sleggjukasti á stórmóti í frjálsum íþróttum og hann viðurkennir að það hafi verið skemmtileg tilfinning að ganga á keppnisvöllinn með hinum ellefu bestu kösturum álfunnar.

„Þetta var ekkert ólíkt því sem var í undanúrslitunum, nema að núna vorum við bara tólf bestu og það var ákveðin tilfinning og maður kveikti að maður var einn af tólf bestu. Svo var það bara keppni og allt í gang,“ sagði hann.

Hilmar var mjög ánægður með árangurinn í undanriðlum, þar sem hann var með sjöunda besta árangur allra og tryggði sér sæti í úrslitunum með sannfærandi hætti.

Ótrúlega gaman

„Það var geggjað. Ég var í hörkustuði og náði að sýna það. Það var fyrsta skrefið og annað skrefið var í kvöld. Það tókst ekki alveg í kvöld en það var ótrúlega gaman að komast í úrslit á stórmóti,“ sagði Hilmar. Hann var ekki í vafa um að úrslit á stórmóti sé hans stærsta afrek á ferlinum, stærra en að setja Íslandsmet. „Já algjörlega. Þetta var klárlega stærra en það. Fyrsta skrefið var að komast í úrslitin og allt hefði verið bónus eftir það.“

Yfirstandandi tímabil er senn á enda, en Hilmar ætlar að halda sér í góðu standi fyrir innanhússtímabilið á næsta ári. „Það er ekkert á planinu með mót í dag en ég held áfram að æfa og undirbúa mig. Ég klára tímabilið og verð svo klár í næsta tímabil,“ sagði Hilmar Örn Jónsson.

Ólympíumeistarinn sigraði

Pólverjinn Wojciech Nowicky, ólympíumeistarinn frá því í Tókýó síðasta sumar, varði Evrópumeistaratitil sinn með kast upp á slétta 82 metra, en það er lengsta kast ársins í heiminum og hans næstbesta kast á stórmóti. Nowicky hefur unnið þrjú gull á stórmótum, tvö silfur og fjögur brons. Bence Halász frá Ungverjalandi varð annar. Hann kastaði lengst 80.82 metra, sem er hans lengsta kast á ferlinum. Halász er bronsverðlaunahafi frá HM í Dóha 2019 og EM í Berlín 2018. Norðmaðurinn Eivind Henriksen kastaði 79,45 metra og tók bronsið. Henriksen varð annar á Ólympíuleikunum í Tókýó og tók bronsið á HM í Eugene í síðasta mánuði.