Kvikmyndirnar Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og Volaða land eftir Hlyn Pálmason eru á meðal kvikmynda í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár en þau verða veitt í Reykjavík í desember. Berdreymi var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar og hlaut þar Europa Cinemas Label-verðlaunin sem besta evrópska myndin í Panorama-flokki. Hefur hún unnið til fjölda annarra verðlauna. Volaða land var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hún verður frumsýnd hér á landi í vetur.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin eru veitt árlega og til skiptis í Berlín og öðrum borgum Evrópu.