4 og 5 bekkur settir í Austurbæjarskóla
4 og 5 bekkur settir í Austurbæjarskóla — Morgunblaðið/Hákon
Fjöldi nýrra nemenda hefur nú hafið grunnskólagöngu sína, en grunnskólar Reykjavíkurborgar voru settir í gær. Skólasetning fór fram í Austurbæjarskóla þar sem Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri ávarpaði meðal annars nemendur í fjórða og fimmta bekk.

Í þeim grunnskólum sem reknir eru af borginni byrja 1.260 börn í fyrsta bekk, en tölur úr sjálfstætt reknu skólunum liggja ekki enn fyrir. Þá byrja alls 14.560 nemendur í skólum borgarinnar frá fyrsta og upp í tíunda bekk.