Illugi Jökulsson og Elísabet Kristín Jökulsdóttir, systkini Hrafns Jökulssonar, harma handtöku hans á Brú í Hrútafirði árið 2020. Segja þau ástvini hans hafa óttast um heilsu hans og því rætt við lögregluna um að litið yrði til hans.

Illugi Jökulsson og Elísabet Kristín Jökulsdóttir, systkini Hrafns Jökulssonar, harma handtöku hans á Brú í Hrútafirði árið 2020. Segja þau ástvini hans hafa óttast um heilsu hans og því rætt við lögregluna um að litið yrði til hans. Hrafn hefur stefnt íslenska ríkinu vegna handtökunnar. Í stefnunni er meðal annars greint frá því að tveir sérsveitarmenn hafi „þuklað hann [Hrafn] með ónærgætnum og hrottalegum hætti... Hafi þetta verið honum sársaukafullt og lítilsvirðandi.“

„Það var frá fyrstu stundu hörmulegt að heyra af því sem gerðist á Brú fyrir tæpum tveim árum. Ástvinir Hrafns höfðu áhyggjur af honum, með réttu eða röngu, og báðu þess vegna um að litið yrði til hans. Þannig var það, því miður,“ skrifaði Illugi í gær. „Enginn lét sér til hugar koma að víkingasveit yrði kölluð út. Það sem þar gerðist var augljóslega hvorki í samræmi við beiðni ástvina hans né almennilega lögregluhætti, og allra síst þann mann sem mætti lögreglumönnunum á Brú og var bersýnilega í alla staði til friðs.“ Elísabet játar að hafa átt ákveðinn þátt í handtöku Hrafns. Segir hún það mistök sem hún harmi alla daga.