Hnykla vöðvana Bandarísk herskip sigldu um sundið í gær.
Hnykla vöðvana Bandarísk herskip sigldu um sundið í gær. — AFP/Justin Stack
Tvö bandarísk herskip sigldu í gegnum Taívansund aðfaranótt sunnudags, að sögn bandaríska sjóhersins. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist síðan Kínverjar efndu til heræfinga í kringum eyjuna.

Tvö bandarísk herskip sigldu í gegnum Taívansund aðfaranótt sunnudags, að sögn bandaríska sjóhersins. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist síðan Kínverjar efndu til heræfinga í kringum eyjuna. Í yfirlýsingu sagði bandaríski sjóherinn að sigling skipanna sé til marks um þá áherslu sem Bandaríkin leggi á frelsi og frið í þessum heimshluta.

Spenna á Taívansundi hefur aukist mjög í þessum mánuði eftir að Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, heimsótti nýverið höfuðborg Taívans, Taipei.

Kínverjar brugðust illa við og efndu til heræfinga umhverfis Taívan. Yfirvöld í Taipei fordæmdu æfingarnar og einnig eldflaugatilraunir vegna mögulegrar innrásar.

Varnarmálaráðuneyti Taívans gaf út í gær að það hefði numið ferðir 23 herþotna og átta kínverskra herskipa í kringum eyjuna. Sjö herþotur flugu einnig yfir miðlínu sundsins, sem myndar óformleg landamæri milli Kína og Taívans.

Taívan býr við stöðuga ógn um innrás Kínverja, sem segja að þessi eyja, undir lýðræðislegri stjórn heimamanna, sé hluti af kínversku svæði sem verði hernumið og það með valdi ef nauðsyn krefur.

Bandarísk stjórnvöld viðurkenna völd Kínverja yfir Taívan á diplómatískan hátt en halda samt áfram samskiptum við Taívan og styðja eyjarskeggja þegar kemur að rétti þeirra til að ákveða framtíð sína. Her Taívans er skipaður 300 þúsund hermönnum. Her Kínverja samanstendur á hinn bóginn af tveimur milljónum hermanna.

freyr@mbl.is logis@mbl.is