Elna Þórarinsdóttir fæddist 8. september 1943. Hún andaðist 8. ágúst 2022. Útför hennar fór fram 18. ágúst 2022.

Það er svo sárt að kveðja þig, elsku hjartans eiginkona sem ég hef gengið gegnum lífið með í 40 ár. Þú varst svo yndisleg kona, einlæg í alla staði, framúrskarandi í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, vildir allt fyrir alla gera, talaðir aldrei illa um aðra, söngst eins og engill, alltaf tilbúin að styðja við börnin þín og barnabörn og elskaðir þau af öllu hjarta.

Nú ertu búin að fá hvíldina eftir þennan hræðilega sjúkdóm sem þú hefur háð hetjulega baráttu við.

Það er óbærilegt að skilja við þig elsku hjartað mitt en fallegar minningar um fallega konu munu lifa áfram. Þangað til við hittumst aftur, hvíl í friði.

Þinn

Baldvin.