Disney hefur nú loks frumsýnt fyrstu örstikluna fyrir leiknu kvikmyndina Litlu hafmeyjuna (The Little Mermaid) og hefur stiklan vakið gífurlega athygli. Þar má sjá leik- og söngkonuna ungu Halle Bailey í fyrsta sinn í hlutverki litlu hafmeyjunnar Aríel.
Skoðanir aðdáenda upphaflegu Disney-myndarinnar á stiklunni hafa verið nokkuð skiptar en myndbönd af ungum svörtum stúlkum að bregðast við stiklunni hafa farið sem eldur í sinu um netið eftir að hún var frumsýnd. Bailey sjálf deildi nokkrum slíkum á instagramsíðu sinni.
Nánar er fjallað um málið á K100.is.