Hestar
Hestar — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Það eru fleiri en borgarbúar Reykjavíkur sem notið hafa haustsólargeislanna sem vermt hafa andlit undanfarna daga. Hestar nutu í mestu makindum í gær þegar ljósmyndara bar að garði, nærri Rauðavatni, utan við Reykjavík.

Það eru fleiri en borgarbúar Reykjavíkur sem notið hafa haustsólargeislanna sem vermt hafa andlit undanfarna daga.

Hestar nutu í mestu makindum í gær þegar ljósmyndara bar að garði, nærri Rauðavatni, utan við Reykjavík.

Þá fer hver að verða síðastur að njóta haustsólargeisla enda næturfrostið farið að láta á sér kræla og haustkuldi að minna á sig.