HA Háskólinn á Akureyri við Norðurslóð
HA Háskólinn á Akureyri við Norðurslóð — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rektorar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst fagna nýjum samstarfssjóði sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, hefur sett á fót.

Rektorar Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst fagna nýjum samstarfssjóði sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, hefur sett á fót. Eyjólfur Guðmundsson rektor HA segir í samtali við Morgunblaðið sjóðinn vera fyrsta skrefið í átt að öflugra samstarfi og öflugra háskólastarfi.

Þá segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor á Bifröst að sjóðurinn fái fólk til að hugsa stórt um hvernig bæta megi háskólamenntun á Íslandi. 18