[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Dagmál Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Auka þarf gæði í þjónustu við ferðamenn sem hingað koma. Þetta segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Arctic Adventures en fyrirtækið er afar umsvifamikið í afþreyingarþjónustu hér á landi.

Dagmál

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Auka þarf gæði í þjónustu við ferðamenn sem hingað koma. Þetta segir Gréta María Grétarsdóttir, forstjóri Arctic Adventures en fyrirtækið er afar umsvifamikið í afþreyingarþjónustu hér á landi. Hún segir að á mörgum sviðum ferðaþjónustunnar sé mikil þekking og fagmennska til staðar en að helst halli á það svið sem fyrirtæki hennar starfar á.

Gréta María er gestur Dagmála og fer yfir ferðasumarið sem nú er senn að baki. Það fór fram úr björtustu vonum allra spáaðila en Seðlabankinn gerir í líkönum sínum ráð fyrir því að erlendir ferðamenn sem hingað koma í ár verði um 1,7 milljónir. Ekki eru margir mánuðir síðan sömu reiknilíkön gerðu ráð fyrir að gestirnir yrðu aðeins 1,4 milljónir.

Leggja upp úr þekkingu

Hún segir að Arctic Adventures leggi mikið upp úr því að starfsmenn fyrirtækisins búi yfir nægilegri þekkingu og reynslu til að tryggja ánægjulega upplifun viðskiptavina fyrirtækisins.

„Við erum með útlendinga í vinnu sem vita miklu meira um Ísland en ég og þú og allir aðrir því þetta er þeirra ástríða. Það er gaman að sjá það og sjá hvernig við getum tekið þetta leiðandi hlutverk á markaði til þess að setja standardinn aðeins hærri.“

Segir hún alltof mikið um að fyrirtæki kasti til höndunum við að fá fólk til starfa. Verið sé að kalla eftir leiðsögumönnum með mjög skömmum fyrirvara á Facebook-síðum. Ekki sé þá endilega spurt um færni eða þekkingu heldur hvort viðkomandi tali tungumál sem þörf er á í það skiptið og hvort viðkomandi geti farið í ferð sem taki einn eða fleiri daga.

„Ég spyr hins vegar, er fólkið búið að læra fyrstu hjálp, er það með einhver réttindi eða er það með reynslu af því að fara í þessa ferð. Því við viljum að þeir sem koma til landsins fái ákveðin gæði í þjónustunni eins og í öllum öðrum geirum. Ég er ekki að segja að þetta sé einhverjum að kenna.“

Eins og villta vestrið

Hún segir að ferðaþjónustan verði að setja ákveðin viðmið þegar kemur að þessum málum. Í dag sé ástandið eins og villta vestrið.

„Þjóðgarðarnir hafa stigið ákveðin skref í þessa átt [...]“ segir hún en bendir á að það þurfi að setja reglur og að viðurlög þurfi við brotum.

Gréta María segir merkilegt að sjá hvað Arctic Adventures komi vel undan tveimur hörmungarárum í ferðaþjónustu 2020 og 2021. Fyrirtækið hafi náð að bregðast skjótt við í upphafi faraldursins og dregið saman seglin. Þá hafi verið mjög ánægjulegt hversu margir reynslumiklir starfsmenn hafi komið aftur til starfa þegar faraldrinum lauk. Hún segir fyrirtækið einnig skoða með mjög gagnrýnum hætti hvar það leggi í mikla fjárfestingu. Í fyrra lögðu hluthafar fyrirtækinu til 500 milljónir króna í formi nýs hlutafjár, jafnvelt þótt efnahagsreikningur fyrirtækisins hafi verið sterkur.

Byggja upp þjónustu í Alaska

Það hafi t.d. verið styrkur í því þegar Arctic Adventures lagði út í fjárfestingu í bandarísku ferðaþjónustufyrirtæki nú í sumar í samfloti við PT Capital sem m.a. hefur fjárfest í fjarskiptamarkaðnum hér á landi. Segir hún fyrirtækið sjá mikla möguleika í uppbyggingu í hinu víðfema fylki Alaska í Bandaríkjunum. Fyrirtækið sem fjárfest hafi verið í hafi fram að þessu fyrst og fremst sinnt sölumálum en nú sé hafin uppbygging á beinni veitingu þjónustu í afþreyingu eins og Arctic Adventures sinnir hér á landi.

Gréta María segist ekki óttast þær aðstæður þar sem Ísland færi úr tísku meðal ferðamanna.

„Það getur vel verið að við verðum ekki hipp og kúl en við erum þó áfram að fá gríðarlegan fjölda af fólki til landsins sem við viljum þjónusta vel. Og þá snýst þetta líka um hvernig við ætlum að hámarka þau gæði sem við höfum. Hafandi verið aðeins í sjávarútveginum, ef maður horfir til baka þar og hvað maður geti lært af því þar sem maður er einnig með náttúruauðlind, þá var ekki mikil verðmætasköpun í því þegar allir voru að fara í sína dagróðra og sækja eitthvað. Það hefur breyst og í dag er vel borgað að vera í sjávarútvegi. Og það viljum við sjá líka í ferðaþjónustunni að við förum að búa til meiri verðmæti og það þýðir væntanlega að við munum sjá einhverja samþjöppun á markaðnum. En það mun líka þýða að þú munt geta greitt enn hærri laun og þá mun það skila sér til baka til samfélagsins.“