Á hringveginum 2003 Jeannette Menzies lét rigninguna og misslæma malarvegina ekki á sig fá í þriggja vikna hjólaferð á leið til Tyrklands.
Á hringveginum 2003 Jeannette Menzies lét rigninguna og misslæma malarvegina ekki á sig fá í þriggja vikna hjólaferð á leið til Tyrklands.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ísland og Kanada fagna 75 ára stjórnmálasambandi þjóðanna í ár. Af því tilefni verður sendinefnd Kanada á árlegri ráðstefnu Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, í Hörpu 13.-15.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Ísland og Kanada fagna 75 ára stjórnmálasambandi þjóðanna í ár. Af því tilefni verður sendinefnd Kanada á árlegri ráðstefnu Hringborðs norðurslóða, Arctic Circle, í Hörpu 13.-15. október óvenju fjölmenn eða yfir 50 manns, þar á meðal háttsettir embættismenn, að sögn Jeannette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi.

Jeannette fæddist og ólst upp í Winnipeg í Manitoba. „Bestu vinir mínir voru Vestur-Íslendingar,“ segir hún á íslensku og bætir við að Ted og Marjorie Árnason, þáverandi bæjarstjórahjón á Gimli, hafi verið afi og amma leikfélaganna. Nágrannarnir í Winnipeg hafi verið með kanadíska og íslenska fánann í glugga hjá sér og stelpurnar hafi átt íslenskar þjóðbúningadúkkur. „Við lékum okkur með þær, ég fór oft til Gimli með foreldrum mínum og íslensku áhrifin í æsku hafa alla tíð fylgt mér síðan.“ Með aldrinum hafi hún fengið mikinn áhuga á norðurslóðum og vinna hennar í utanríkisþjónustunni, sem hófst 2001, hafi tengst þeim að stórum hluta.

Hjólaði hér á leið til Tyrklands

Hlaup og hjólreiðar hafa verið Jeannette hugleikin alla tíð og meðal annars hjólaði hún víða um Nýja-Sjáland eftir að hafa búið í Ástralíu um hríð. Síðar vann hún hjá reiðhjólafyrirtæki og var leiðsögumaður í hjólaferðum í Frakklandi. „Ég taldi mig hafa himin höndum tekið í besta mögulega starfinu en fljótlega áttaði ég mig á því að ég vildi frekar hjóla ein míns liðs eða með einum ferðafélaga en í skipulögðum hópi.“ Því hafi hún sótt um í utanríkisþjónustunni en haldið áfram að hjóla í frítímanum.

Fyrsta opinbera starf Jeannette var í Tyrklandi og hún stoppaði á Íslandi á leiðinni þangað til þess að hjóla hringveginn. „Ég fékk vinkonu mína í Kanada til þess að hjóla með mér og við vorum þrjár vikur á leiðinni,“ rifjar hún upp. Þetta hafi verið í ágúst 2003, malarvegirnir verið erfiðir vegna mikilla rigninga en ekkert hafi stöðvað þær. „Fáir ferðamenn voru á ferðinni og við nutum hvers dags. Ég las Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness þegar við slöppuðum af og við sváfum í tjaldi á nóttunni. Við sáum enga aðra hjólandi ferðalanga og ég held að sumum íbúum hafi þótt við frekar skrýtnar!“

Í íslenskunámi

Árlega utanvegahlaupið The Puffin Run, Lundahlaupið, fór fram í Vestmannaeyjum í maí. Jeannette tók þátt í því og segir það einn af hápunktum Íslandsdvalarinnar. „Ég nýt þess að hlaupa úti í náttúrunni og það er góð æfing, en ég er ekki í neinni keppni, hleyp bara ánægjunnar vegna og hlaupið var sérlega skemmtilegt – ekki síst vegna þess að það var engin rigning,“ segir hún.

Jeannette tók við embættinu í janúar 2021 og er fyrsti sendiherra Kanada á Íslandi frá Manitoba. „Þetta er einn fárra staða í heiminum þar sem fólk veit hvaðan ég er þegar ég segist koma frá Winnipeg eða Manitoba, því Íslendingar tengja svo vel við fylkið.“ Hún byrjaði að læra íslensku nokkrum mánuðum áður en hún flutti til Reykjavíkur og hefur haldið náminu áfram síðan. „Málið er fallegt en erfitt en ég get notað kunnáttuna í Manitoba þegar ég hitti þar fólk af íslenskum ættum sem skilur íslensku. Þá get ég sagt: Ég hef komið til Íslands nokkrum sinnum. Í fyrsta skiptið, 2003, hjólaði ég hringveginn. Það var skemmtilegt en mjög erfitt.“