„Mig hefur alltaf langað til að prófa að flambera marengs á köku og loksins lét ég verða af því! Nú verður ekki aftur snúið. Ætli ég fari ekki að flambera allt núna því þetta var svo gott!“ segir Berglind Hreiðarsdóttir, matarbloggari á Gotteri.is og við tökum heils hugar undir orð hennar.
Botn kökunnar er gerður úr brownie-deigi. Ostakaka með kirsuberjasultu er sett yfir og loks flamberaður marengs. Hér er á ferðinni einstaklega glæsileg kaka sem sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er.
Ostakökubomba
Brownie-botn
200 g dökkt súkkulaði
80 g púðursykur
1 tsk. vanilludropar
1 egg
70 g hveiti
Bræðið saman smjör og súkkulaði. Leyfið hitanum að rjúka aðeins úr.
Takið á meðan til smelluform, um 20-22 cm í þvermál, og setjið bökunarpappír í botninn. Úðið formið með matarolíuúða, bæði botn og hliðar.
Setjið súkkulaðiblönduna í hrærivélarskálina og blandið púðursykri og vanilludropum saman við.
Næst fer eggið út í, hrærið vel og skafið niður á milli.
Að lokum skal blanda hveitinu vel saman við og hella deiginu í formið.
Bakið í um 25 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út með smá kökumylsnu á endanum. Deigið á ekki að vera blautt.
Leyfið að kólna alveg í forminu áður en þið hellið ostakökublöndunni yfir.
Ostakaka
40 ml sjóðandi vatn
500 g rjómaostur við stofuhita
125 g sykur
100 g flórsykur
1 vanillustöng (fræin)
250 ml þeyttur rjómi
½ krukka St. Dalfour Black Cherry-sulta
Hitið næst 40 ml af vatni þar til það fer að sjóða, takið matarlímsblöðin upp úr kalda vatninu, eitt í senn, og kreistið vatnið úr þeim. Setjið í sjóðandi vatnið og hrærið þar til gelatínið er uppleyst. Hellið blöndunni yfir í annað ílát og leyfið henni að ná stofuhita.
Þeytið saman rjómaost, sykur og flórsykur. Bætið vanillustönginni saman við og loks matarlímsblöndunni í mjórri bunu í lokin.
Blandið næst þeytta rjómanum saman við með sleikju og að lokum sultunni.
Gott er að blanda henni bara rétt saman við ostakökugrunninn svo kakan fái smá marmaraáferð.
Hellið ostakökugrunninum ofan á brownie-botninn og kælið í að minnsta kosti fjórar klukkustundir eða yfir nótt áður en þið setjið marengsinn á toppinn.
Gott er að láta heitt vatn renna á góðan hníf og renna honum síðan meðfram forminu áður en þið smellið því af og færið kökuna yfir á disk með góðum spaða/kökulyftara.
Toppur
¼ tsk. salt
250 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
Blandið þá flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum, þeytið í nokkrar mínútur eða þar til topparnir halda sér.
Setjið þá vanilludropana saman við og þeytið stutta stund til viðbótar.
Setjið í sprautupoka með stórum hringlaga stút og sprautið í doppur ofan á kælda ostakökuna.
Notið síðan brennara („torch“) til að lita marengsinn og gera hann stökkan að ofanverðu.
Geymið kökuna í kæli fram að framreiðslu.