2 Sif Atladóttir skrifaði undir tveggja ára samning á Selfossi.
2 Sif Atladóttir skrifaði undir tveggja ára samning á Selfossi. — Ljósmynd/Selfoss
Knattspyrnukonan Sif Atladóttir hefur framlengt samning sinn við Selfoss en samningurinn gildir út keppnistímabilið 2024.

Knattspyrnukonan Sif Atladóttir hefur framlengt samning sinn við Selfoss en samningurinn gildir út keppnistímabilið 2024.

Varnarmaðurinn gekk til liðs við Selfoss fyrir yfirstandandi keppnistímabil eftir farsælan atvinnumannsferil með Saarbrücken í Þýskalandi og Kristianstad í Svíþjóð. Sif á að baki 90 A-landsleiki fyrir Ísland en hún fór á sitt fjórða stórmót í sumar þegar íslenska kvennalandsliðið tók þátt í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fór á Englandi.