Heklureitur Öll húsalengjan við Laugaveg mun víkja fyrir nýju byggðinni.
Heklureitur Öll húsalengjan við Laugaveg mun víkja fyrir nýju byggðinni. — Morgunblaðið/sisi
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur heimilað niðurrif á öllum húsum á Heklureitnum, Laugavegi 168-174. Þarna á sem kunnugt er að rísa hverfi fjölbýlishúsa með allt að 463 íbúðum. Það eina sem eftir stendur er borholuhús á Laugavegi 174a. Húsin á lóð nr.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur heimilað niðurrif á öllum húsum á Heklureitnum, Laugavegi 168-174. Þarna á sem kunnugt er að rísa hverfi fjölbýlishúsa með allt að 463 íbúðum. Það eina sem eftir stendur er borholuhús á Laugavegi 174a.

Húsin á lóð nr. 168-174 við Laugaveg eru skrifstofu-, verslunar- og iðnaðarhúsnæði, byggt á árunum 1943-1972. Í deiliskipulagi fyrir lóðirnar, sem samþykkt var í fyrra, er niðurrif heimilað á öllum húsum.

Í deiliskipulaginu er tekið fram að niðurrif mannvirkja er leyfisskyld starfsemi og fylgja ber verklagsreglum Reykjavíkurborgar. Gera skal grein fyrir flokkun og meðhöndlun útgangs.

Þá er lóðarhöfum skylt að leggja fram áætlun um niðurrif mannvirkja. Þeim er sömuleiðis skylt að leggja fram áætlun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum og kynna hana fyrir eigendum fasteigna á aðliggjandi lóðum.

Á Heklureit er í dag fjölbreytt atvinnustarfsemi. Þar er stærsti aðilinn Hekla hf., bílaumboð og verkstæði, en einnig eru þar minni fyrirtæki og skrifstofuhúsnæði. Gert var samkomulag milli Reykjavíkurborgar og lóðarhafa við Laugaveg 168-174 um tilfærslu á starfsemi Heklu hf. af lóðunum.

Hekla hefur átt í viðræðum við Garðabæ um lóð undir starfsemina þar í bæ. sisi@mbl.is