Aðdráttaraflið Fíllinn hjá Carlsberg heillaði Jóhann í fyrstu ferð.
Aðdráttaraflið Fíllinn hjá Carlsberg heillaði Jóhann í fyrstu ferð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fólk sankar að sér ýmsum hlutum, eins og gengur. Sumir safna pennum, aðrir frímerkjum, servíettum, þjóðbúningadúkkum, útskornum fuglum, jólaskeiðum og bollum, svo dæmi séu tekin.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Fólk sankar að sér ýmsum hlutum, eins og gengur. Sumir safna pennum, aðrir frímerkjum, servíettum, þjóðbúningadúkkum, útskornum fuglum, jólaskeiðum og bollum, svo dæmi séu tekin. Til eru þeir sem safna málverkum, fasteignum, bílum og peningum en Jóhann Hákonarson er ólíkur flestum ef ekki öllum söfnurum því hann safnar fílum!

Félagarnir Jóhann og Ágúst Gunnarsson eiga og reka innflutningsfyrirtækið Dan-inn ehf. Þeir eru með umboð fyrir margar danskar vörur og starfsins vegna hafa þeir oft verið í Danmörku undanfarna áratugi. Sagt hefur verið um marga Vestur-Íslendinga að þeir séu íslenskari en margur landinn og með sanni má segja að Jóhann sé danskari en margur Daninn.

Afdrifarík fyrsta ferð

Hann fylgir dönskum hefðum út í ystu æsar. Fyrir jólin í fyrra héldu þeir Ágúst til dæmis upp á það að þá hefðu þeir gert vel við sig að hætti Dana 800 sinnum við borð númer 16 á Jómfrúnni í Lækjargötu í Reykjavík í hádeginu á föstudögum frá aldamótum. Geri hreinræktaðir Danir betur!

Jóhann segir að hann hafi fallið fyrir danska smurbrauðinu og fílnum eða Elefant-bjór í fyrstu ferðinni til Kaupmannahafnar. „Brauðið og bjórinn smellpössuðu fyrir mig og þessi næring hefur verið mitt uppáhald síðan,“ segir hann um helstu hefðina í mat og drykk. Bætir við að þegar bjórinn hafi verið leyfður á Íslandi hafi Elefant ekki staðið til boða og hann hafi þurft að bíða nokkuð lengi eftir því að næra sig á Íslandi eins og hann hafði vanist í Danmörku en biðin hafi ýtt undir áhugann á Elefant og þar með fílum. „Þegar ég fór í kynnisferð í Carlsberg-verksmiðjuna í Kaupmannahöfn sá ég stórar styttur af fílum í fyrsta sinn, heillaðist algerlega og síðan hafa fílar haft þessi áhrif á mig, ég sé þá í hverju horni og ræð ekki við mig þegar þeir eru annars vegar.“

Fullvaxinn fíll er ekki barnameðfæri. Þess vegna hefur Jóhann verið lítillátur og safnað litlum fílum. „Í hjörðinni eru yfir 100 dýr og safnið því langt því frá að vera í útrýmingarhættu,“ segir hann og bendir á að hann lumi líka á mörgum mismunandi Elefant-flöskum og -dósum. „Þessi árátta hefur smitað út frá sér og afastrákurinn Dagur Snær skar til dæmis út Elefant-fótboltavöll þegar hann var í Melaskólanum.“

Jóhann komst í feitt þegar hann frétti af fílaverslun í Lyngby fyrir tæpum 20 árum. „Ég svaf ekki af spenningi og aldrei þessu vant fór ég með frúna í verslun en ekki öfugt. Það hefði ég ekki átt að gera, því hugur minn stóð til að kaupa tveggja tonna fílsstyttu, en þá sagði konan hingað og ekki lengra. „Ertu galinn,“ sagði hún og dró mig að annarri meðfærilegri styttu. „Keyptu þessa,“ sagði hún og ég lét undan, með semingi þó. En þar fór söfnunin samt á hærra stig.“

Styttan er úr graníti, 500 kg að þyngd. Samskip fluttu hana til Íslands þar sem hún var sett á bíl með krana og síðan komið fyrir framan við sumarbústað hjónanna í Vaðnesi. „Ég var þar með kominn með fílsunga með skögultennur og vissi að hann gæti ekki verið lengi frá mömmu sinni. Þau eru enn aðskilin en koma tímar og koma ráð.“